26.1.2009 | 19:16
Þurrkum út gömlu flokkana
Þá er ríkisstjórnin fallin og brátt fáum við kjósendur að sýna hug okkar í verki. Þegar dyr kjörklefana opnast loks er mikilvægast af öllu að gleyma ekki því sem gengið hefur á undanfarið og sýna stjórnmálamönnum að þótt þeir neiti að taka ábyrgð á gerðum sínum eru kjósendur færir um að kenna þeim sitt hvað um muninn á réttu og röngu. Enginn af þeim sem nú starfar í stjórnmálum er hæfur til að taka sæti á þingi og leiða okkur í gegnum þessar þrengingar. Þeir eru allir sem einn litaðir af spillingunni og ef þeir hafa ekki tekið að fullum krafti þátt í dansinum kringum útrásarvíkingana hafa þeir staðið hjá og ekki lagt eyrun við varnaðarorðum vísra manna. Stjórnmálaumhverfið hér á landi nú minnir mig á ævintýri sem ég las sem barn um þríhöfða þurs. Svo illa var fyrir honum komið að hvert höfuð hafði sína skoðun á öllu sem fyrir bar og þursinn gat ekkert gert án þess að það kostaði rifrildi og þus höfðanna í langan langan tíma. Framsóknarflokkurinn heldur að það nægi að skipta um ásýnd á höfðinu en gleymir að það situr enn á sama hálsinum. Þeim hálsi sem kyngdi einkavæðingu bankanna, ofurlaununum, auðsöfnun örfárra manna meðan bjargarleysi þeirra lægst settu jókst. Þursinn í ævintýrinu endaði með að tortíma sjálfum sér því að lokum náðu höfuðin að æsa hvert annað svo upp að hendur hans hjuggu þau öll af. Það er það sem við kjósendur þurfum að gera. Eini munurinn er að við þurfum að höggva niður fimm höfuð, Sjálfstæðis, Samfylkingar, Framsóknar, Vinstri grænna og Frjálslyndra. Gerum það sem þarf. Stofnum nýtt lýðveldi með tilstyrk fólks sem raunverulega hefur hugsjónir að leiðarljósi og er tilbúið að vinna af heilindum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.1.2009 | 13:00
Bótaskylda skólayfirvalda
Að undanförnu hefur verið mikil umræða um einelti í kjölfar þess að ung stúlka fór að skrifa bogg um reynslu sína af því í Varmárskóla í Mosfellsbæ. Linda Samsonar Gísladóttir vekur athygli á skrifum hennar á sínu bloggi og segir frá eigin reynslu. Við í minni fjölskyldu höfum ekki farið varhluta af þessu því systursonur minn var beittur mjög grófu ofbeldi í sínum skóla en skólastjórinn kaus að líta framhjá því. Það yrði of langt mál að rekja þá sögu en frá upphafi var ljóst að sá vanhæfi maður hafði ákveðið að um væri að ræða leik sem hefði farið úr böndunum og allir ættu bara að vera góðir og glaðir. Hann gat ekki skilið af hverju fjölskylda fórnarlambsins var ekki sæl og ánægð með það. Það nægir að nefna það dæmi að hann hélt því fram að sá sem leiddi hópinn hafi verið of lágvaxinn til að geta sparkað í fórnarlamb sitt. Þegar hann var þá inntur eftir því hversu hávaxinn drengur þyrfti að vera til að sparka í hnésbæturnar á öðrum pilti sem var 160 cm á hæð var svarið að móðirin sem spurði væri svo æst og öfgafull að ekki væri við hana talandi. En það sem ég vildi aðallega rekja var að skömmu eftir þetta aflaði ég mér upplýsinga um eineltismál og skrifaði grein í Vikuna um tvær stúlkur í Svíþjóð sem höfðuðu mál á hendur skólayfirvöldum vegna ofbeldis sem þær voru beittar í skóla og hafði haft áhrif á allt þeirra líf. Þegar ég skrifaði greinina var máli annarrar ekki lokið en í hinu málinu hafði fallið dómur þar sem bótaskylda skólans var viðurkennd en ekki talið að færðar hefðu verið nægilegar sönnur á að skólinn hefði ekki gert allt sem í hans valdi stóð til að koma í veg fyrir ofbeldið. Ég hef aldrei skilið af hverjuviðbrögð við greininni voru jafnlítil og raunin varð því þarna er um tímamóta dóm að ræða. Það er sem sagt viðurkennt að samkvæmt okkar lögum eru skólayfirvöld bótaskyld sinni þau ekki skyldu sinni gagnvart fórnarlkömbum eineltis. Í raun þyrfti ekki annað en að höfða prófmál hér og þá má einnig hugsa sér að hægt væri að höfða einkamál gegn kennara sem ekki stæði sig. Kennarar og skólastjórar eru rétt eins og læknar bótaskyldir sannist á þá afglöp í starfi. Ég vona að einhver verði til þess að höfða slíkt mál hér á landi því ég hef þá trú að einelti þrífist aldrei í skólum nema með samþykki þeirra sem stjórna þeim. Ég hef nefnilega séð dæmi um hvoru tveggja. Þegar þessi frændi minn sem um var rætt hér að ofan hafði hrökklast úr sínum gamla skóla bar á því að börnin í þeim nýja vildu útiloka hann líka eins og oft er raunin með eineltisfórnarlömb því þau eru svo beygð og brotin eftir reynslu sína. Þar var strax brugðist við og áætlun fór í gang sem breytti öllu fyrir hann og það sem eftir var hans skólagöngu var ánægjulegur tími.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.1.2009 | 11:01
Mikilvægi undirfata
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
5.1.2009 | 11:40
Heilarandi og annað gott
Ég hef ekki bloggað ansi lengi og spyr bara eins og kerlingin forðum: Ætli ég hafi nú loksins lært að þegja? Nei, ég held varla. Hins vegar hrundi tölvan mín og enn er ekki útséð um hvort borgar sig að gera við hana eður ei. Ég hef því lítið getað farið á Netið nema hér í vinnunni og ekki gengur alltaf vel að stela stundum til að skrifa blogg meðan blaðið krefst þess að einhver skrifi það. Ég vil byrja á að óska öllum bloggvinum mínum gleðilegs árs og þakka þeim fyrir allar kveðjurnar sem sannarlega voru kærkomnar. Um daginn var ég svo að rifja upp þann forna sið að skilja eftir heilaranda í rólunni eða sætinu þegar maður stóð upp sem maður tíðkaði mjög hér á árum áður. Ég stóð sem sagt í þeirri meiningu að heilarandi væri einhver hluti heilans sem hefði þá náttúru að hann gæti stokkið úr höfði manns og litið eftir svo lítilvægum hlutum sem sætinu ef maður þyrfti að skreppa frá. Magga systir hélt að þetta væri heilarönd en það var ekki fyrr en við systur vorum orðnar ansi stórar og fullorðnar að við uppgötvuðum að það var heilagur andi sem beðinn var fyrir sætið en ekki hinn árvökuli heilarandi eða hin síkvika heilarönd. Ég vona hins vegar að heilarandar og heilarendur landsmanna megi virka vel á komandi ári ekki veitir af.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.11.2008 | 11:52
Leiðrétting
Hafa skal það sem sannara reynist. Ég verð að leiðrétta þann misskilning minn að það var ekki jafnréttisþing sem haldið var í Iðnó heldur var þetta málstofa gegn kynbundnu ofbeldi á vegum The European Women's Lobby. Ég hafði heyrt að kvenréttindakonur hyggðust halda eigið þing og ákvað þess vegna þetta væri það. En það breytir ekki því Magga mín fékk viðurkenningu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.11.2008 | 17:55
Systrakærleikur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
18.11.2008 | 15:26
Óbjörgulegar björgunaraðgerðir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.11.2008 | 20:12
Glæpamenn og glæpirnir sem þeir fremja
Ég var að lesa bók Erlu Bolladóttur, Erla góða, Erla, og verð að segja að ég er hálfsjokkeruð eftir lesturinn. Hingað til hafði ég haldið að rannsóknarmenn í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefðu í einlægni talið sig vera að vinna að því að upplýsa málið og rétt eins og íslenskur almenningur trúað því að þessir einstaklingar væru sekir um morð. Ef marka má tilfinningu Erlu gagnvart yfirheyrslunum, og í raun er engin ástæða til að efast um hana, vissu þessir menn fullvel að ekki stóð steinn yfir steini í frásögnum hennar og þversagnir voru svo margar og margvíslegar að allt rakst á hvers annars horn. Henni fannst hún vera að leika í leikriti og að hún og rannsóknarmenn vissu fullvel að um spuna og tilbúning væri að ræða. Þessir menn voru hins vegar ákveðnir í því að leiða málið til lykta á einn veg til þess að tryggja starfsframa sinn og vegferð í kerfinu og það tókst. Þeir hafa allir hafist til æðstu metorða hver á sínu sviði og þótt almenningur viti í dag að rannsókn þessi var meingölluð og aðilar málsins saklausir af þeim sökum sem á þá voru bornar hafa þeir aldrei þurft að svara fyrir verk sín. Líf fjögurra ungra manna og einnar konu var lagt í rúst og fjórir menn sátu saklausir í gæsluvarðhaldi með öllum þeim sársauka sem því fylgir. Nú verðum við að spyrja okkur hverjir séu glæpamennirnir í þessu máli og hvers konar glæpur var framinn fyrir rúmum þrjátíu árum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.11.2008 | 16:07
Að spila með eða sitja hjá
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.10.2008 | 10:00
Ofurlítill pirringur
Í vor fluttum við hjónin símaþjónustu okkar frá Vodafone til Tals. Ég er mikið að hugsa um að nota búferlaflutningana og flytja símann aftur því ég hef barasta aldrei kynnst öðrum eins klúðrurum og Talsmönnum. Ég bað um að síminn og nettengingin yrðu flutt þann 20. október. Tveimur dögum síðar var heimasíminn kominn og allir glaðir. Netið er hins vegar ekki komið enn og bólar ekki á því. Við hringdum viku síðar og var þá sagt að netið myndi detta inn þá og þegar. Mikil hundakæti greip svo heimilisfólk þegar ég fékk SMS frá Tali fyrir tveimur dögum þar sem tilkynnt var að nú væri Netið komið og ég gæti tengt mig. Við hlupum að tölvunum en ekkert gerðist. Á skjáinn komu leiðinda tilkynningar um að netforritið gæti ekki tengst síðunni sem beðið var um. Enn og aftur var hringt og þá kom í ljós að tengingin var vitlaus. Ég spurði hvort jafnlangan tíma tæki að leiðrétta tenginguna og tekið hafði að tengja hana rangt og fékk þau svör að þetta væri alveg að koma og myndi detta inn þá og þegar. Síðan bætti starfsmaðurinn við: „Það getur alltaf komið fyrir að menn tengi vitlaust.“ Þakka þér fyrir að benda mér á hið augljósa. Mér hefði að sjálfsögðu aldrei dottið það í hug af sjálfsdáðun. En sem sé, tveir dagar liðnir og enn ekkert net. Bloggvinir góðir, ég laumast á bloggið í vinnunni ef dauð stund gefst en þar fyrir utan eru mér allar bjargir bannaðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Bloggvinir
-
heidamagg
-
svartfugl
-
addipain
-
audureva
-
meyfridur
-
arh
-
berglist
-
bjarnihardar
-
heiddal
-
salkaforlag
-
gattin
-
skordalsbrynja
-
brandarar
-
draumur
-
saxi
-
elinarnar
-
sifjar
-
lucas
-
kokkurinn
-
gudnyanna
-
sveitaorar
-
gurrihar
-
geggjun
-
gmj
-
handtoskuserian
-
iador
-
heidistrand
-
skessa
-
heidathord
-
hlekkur
-
don
-
hronnsig
-
haddih
-
ingibjorgelsa
-
jahernamig
-
jenfo
-
jonaa
-
nonniblogg
-
katrinsnaeholm
-
kolbrunb
-
hjolaferd
-
larahanna
-
lillagud
-
lindalea
-
lindagisla
-
ranka
-
salvor
-
sigga
-
zunzilla
-
sivvaeysteinsa
-
shv
-
steinibriem
-
slartibartfast
-
saethorhelgi
-
valdis-82
-
valgerdurhalldorsdottir
-
vertu
-
valli57


